1.4.2011 | 13:37
Æfingaleikur frestast
Kv. Gunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.3.2011 | 14:32
Nettómót 2011
Góðan daginn,
þá er það viðburðurinn sem allir hafa beðið eftir, Nettómótið 2011!!! Við leikum á laugardag og sunnudag, 4. bekkur spilar alla sína leiki að Sunnubraut og 3. bekkur alla sína í Heiðarskóla. Ég skipti í 2 lið í hvorum árgang og ætlast til þess að foreldrar taki að sér liðsstjórn. Ég mun svo flakka á milli og fylgjast með. Ég læt strákana hafa blað á æfingu á morgun, fimmtudag, með upplýsingum um hvar og hvenær þeir eiga að spila. Það eiga allar nánari upplýsingar að vera í bæklingnum sem ég lét alla strákana hafa fyrir 3. vikum síðan. Það kostar 4000 kr á mann.
Keflavík3 skipa Andri, Aron, Arnór Daði, Bergur, Siggi Hólm og Nói. Þeir hefja leik 9.30 á laugardag á velli 5 á sunnubraut. Nánari leikjaniðurröðun verður á blaðinu. Bíóferðin hjá þeim verður á laugardag klukkan 14:00.
Keflavík4 skipa Kristinn, Vilberg, Einar, Pálmi, Elvar og Hjalti. Þeir hefja leik 8.00 á laugardag á velli 2 á sunnubraut. Nánari leikjaniðurröðun verður á blaðinu. Bíóferðin hjá þeim verður á laugardag klukkan 14:00.
Keflavík5 skipa Davíð Snær, Magnús, Helgi, Guðbrandur, Árni og Viðar. Þeir hefja leik 8.30 á laugardag á velli 10 í Heiðarskóla. Nánari leikjaniðurröðun verður á blaðinu. Bíóferðin hjá þeim verður á sunnudag klukkan 11:00.
Keflavík6 skipa Róbert, Rúnar, Anton, Bjarki, Tómas og Ómar. Þeir hefja leik 10.00 á laugardag á velli 9 í Heiðarskóla. Nánari leikjaniðurröðun verður á blaðinu. Bíóferðin hjá þeim verður á sunnudag klukkan 11:00.
Ég birti þetta með fyrirvara um prentvillur og jafnvel að það vanti einn eða tvo ;) ef eitthvað er rangt með farið hér, endilega sendið mér línu kefstef14@gmail.com eða hringið í 892-2265.
Með kveðju og hlakka til að sjá ykkur öll með bros á vör um helgina,,, Gunni Stef
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2011 | 11:10
Actavismót 2011
Jæja þá er loksins komin lokaniðurröðun fyrir mótið um helgina. Þáttökugjald er 1800 krónur á leikmann. Við munum leika á laugardeginum og mun 4. bekkur spila fyrir hádegi og hjá 3. bekk verður annað liðið frá 9.30 til 12.00 og hitt frá 12.00 til 14.30. Ég lét strákana í 3 bekk hafa miða á þriðjudaginn, því þeirra dagskrá átti að vera föst í skorðum sem og hún er.
4. bekkur var hins vegar ekki alveg niðurnegldur, en það er komið núna. Keflavík1 hefur leik klukkan 9.00 og í því liði eru Arnór Daði, Nói, Andri, Siggi Hólm og Aron Smári. Keflavík2 hefur leik klukkan 9.30 og í því liði eru Einar, Kristinn, Pálmi, Vilberg, Elvar og Bergur Daði. Gott er að mæta tímanlega og hafa með sér gott nesti. Allir að koma með hvíta búninginn sinn og góða skapið. Hlakka til að sjá ykkur hress og kát á laugardaginn. Kv. Gunni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.12.2010 | 10:25
Jólaplan og Actavismót
Sæl, þá nálgast jólin og hefur sú ákvörðun verið tekin að 4. bekkur og yngri æfa samkvæmt skólanum, þ.e. jólafríið hefst frá og með 20. des og hefjast æfingar aftur 4. janúar. Það er s.s. seinasta æfing fyrir jól hjá okkur á föstudaginn 17. des og fyrsta æfing á nýju ári þriðjudaginn 4. jan. Ég er búinn að skrá okkur til keppni á Actavis mót Hauka, sem fram fer helgina 8. og 9. janúar og vonast ég til að sem flestir sjái sér fært að mæta.
Að öðru leyti vil ég bara óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Með körfukveðju Gunni Stef
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.12.2010 | 12:34
Breytt fyrirkomulag
Það breyttist planið hjá þeim ÍR-ingum og munum við leika á laugardeginum. Ég vona að það henti fólki betur, eða í það minnsta ekki verr. 3. bekkur á að mæta 12.30 og ættu að vera búnir um 15.30-16.00. 4. bekkur mætir hins vegar klukkan 14.00 og ljúka leik um 16.30-17.00. Það þarf að mæta með 2500 krónur, skó og búninginn sinn. Ef búningurinn er orðinn of lítill, eða týndur, þá er bara að koma með hvítan bol og stuttbuxur. Ég kem með einhverja búninga og við sjáum hvort þeir séu nothæfir. Annars hlakka ég bara til að sjá ykkur.
Bkv. Gunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.12.2010 | 13:33
Niðurröðun
Jæja, þá er niðurröðunin komin fyrir ÍR mótið. Ég skráði til leiks 4 lið og munum við leika á sunnudegi frá 12.45 til 16.05 í 3. bekk, en 4.bekkur er frá 12.45 til 15.40. Þetta eru 3 leikir á lið. Ég ætla ekki að skipta niður á lið fyrr en ég er endanlega kominn með hverjir verða með. Þannig að mæting er á sunnudag í Seljaskóla í Breiðholti, klukkan 12.00. Hlakka til að sjá ykkur sem flest.
Kveðja Gunni s:863-6226
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.11.2010 | 15:11
Nettómót ÍR næstu helgi
Sæl öllsömul, Nettómót ÍR verður næstu helgi 4.-5. desember. Ég hef ekki enn fengið senda niðurröðun leikja, en það hlýtur að koma á næstu dögum. Set þá niðurröðun hér inn. Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk í síðustu viku verður þetta 3.-4. tíma mót, s.s. á að klárast fyrir eða eftir hádegi, annað hvort laugardag eða sunnudag. Það kostar 2500 krónur á leikmann, inn í því á að vera mótsgjald, nestispakki og eitthvað annað sniðugt. Vona að ég sjái ykkur sem flest og við skemmtum okkur saman.
Með kveðju Gunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2010 | 13:05
Breytt æfingatafla
Góðan dag, það er ein breyting á æfingatöflunni hjá strákunum. Föstudagurinn verður núna 16.10-17.00 í Heiðarskóla. Vona svo sannarlega að þessi breyting muni ekki raska miklu hjá fólki. Næst á dagskrá hjá okkur er svo ÍR mótið í byrjun desember. Taflan hjá okkur er þá svona
Þriðjudaga 14.20-15.20 B-salur Sunnubraut
Fimmtudag 14.20-15.20 B-salur Sunnubraut
Föstudag 16.10-17.00 Heiðarskóli
Þessi tafla mun taka gildi frá og með föstudeginum 5. nóvember 2010
Með kveðju Gunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2010 | 14:22
Foreldradagur 23. október
Sæl veriði, nú er bloggið loks að komast aftur á skrið eftir ágætt sumarfrí. Á laugardaginn næstkomandi, 23. október, verður svokallaður foreldradagur í íþróttahúsinu á sunnubraut. Þar munum við leika okkur aðeins saman frá 14.00 í B-salnum. Drengirnir hafa m.a. skorað á foreldra að taka við sig léttan leik, auk þess sem við munum slá á létta strengi með ýmsum æfingum. Að sprelli loknu ætla ég svo að ræða aðeins við foreldra um komandi vetur, ákveða hvaða mót við munum fara á o.s.frv. Með von um að sem flestir sjái sér fært að mæta
Kveðja Gunni Stef
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2010 | 13:08
Páskarnir
Sæl öll, páskadagskráin verður þannig að við tökum æfingu í dag þriðjudag á venjulegum tíma þ.e. 14.20-15.20. Svo verðum við í páskafríi þar til skólinn byrjar. Næsta æfing verður því fimmtudaginn 8.apríl. Annars óska ég ykkur gleðilegra páska og hafið það gott.
P.s. peysurnar frá nettómótinu koma vonandi sem fyrst.
Páskakveðja Gunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 6644
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



